|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|
22.02.2012 19:44:36 / canary
Þá er hér málamynda innlegg vegna 5. umferðar. Annar leikurinn er reyndar búinn nú þegar ég hendi þessu hér inn og af 3 sem völdu að veðja á leik Lierse gegn Lokeren þá er það einungis Alli sem hefur haft erindi sem erfiði. Eftir sitja Diddi og Dagur. "Rönnið" er því búið....í bili, hjá Degi. Spennandi leikur framundan og keppendur eru að skipta sér nokkuð jafnt á úrslitin. Sjáum til hverju fram vindur. ATH! Nú sýnist mér að enginn S-leikur sé í boði á föstudaginn. Ég vil því leggja til tvo valkosti:
A: Tökum bara frí á föstudeginum. Höldum síðan áfram með sama hætti á laugardeginum.
B: Tökum 2 S-leiki á laugardeginum í sitt hvoru lagi til að bæta okkur upp föstudaginn.
Hvað finnst ykkur!
»
21.02.2012 18:31:23 / canary
Það er óneitanlega skemmtilegra að hafa úr fleiri en einum leik að velja og sýnist mér að það geti orðið sviptingar ef úrslit leikja verða keppninni hagstæð. Þá á ég auðvitað við að úrslit verði á þann veg að halda keppninni sem jafnastri. Einn spádómur er augljóslega athyglisverðastur og það er ás Guðmundar á leik Napoli og Chelsea. 3 aðrir gera reyndar ráð fyrir heimasigri en Guðmundur lætur ekki þar við sitja og setur allan sinn sjóð, (ef undan eru skildar 5 krónur) eða 700 krónur undir. Þetta er nýtt met í leiknum og býður að auki uppá nýtt met í mestum gróða á einum leik (770 kr), nú eða mesta tapi á einum leik. Nú er það bara stóra spurningin hvoru megin þetta fellur. Einn leikur er í þessum töluðu (skrifuðu) orðum í hálfleik og staðan er vænleg fyrir heimasigurinn sem Alli setti á; Bologna er að vinna Fiorentina 2-0 EN hvar er Sigmar Ævar Hallsson? Var þetta allt úthaldið?
»
20.02.2012 16:41:56 / canary
Má til með að taka hérna seinni hálfleik í umfjöllun um Warnock.

Elskum hann eða hötum hann! Hvernig sem það er þá tel ég alla vega ólíklegt að þeir finnist margir sem fylgjast með boltanum sem ekki hafa skoðun á Neil Warnock. Ég hef ekkert verið að fela það en ég held að þarna sé komið eitt það almesta fífl sem fyrirfinnst á stjórastóli. Ég næ sjaldnast að hafa gaman af bullinu sem frá honum kemur og eða hvernig hann hagar sér á meðan á leik stendur. Ég hef þó stöku sinnum haft gaman af því að sjá hann brjálaðan eftir tapleiki og það var ekkert leiðinlegt að fylgjast með honum missa sig í rugluna í tvígang í vetur eftir tap gegn NC. Vissulega voru QPR miklu betri aðilinn í leiknum, í bæði skiptin, og þeir gerðu í báðum leikjunum nóg til að vinna, að hans sögn, og því nokkuð undarlegt að NC tóku 6 stig í þessum innbyrðis viðureignum. Sama var í rauninni uppá teningnum með aðra leiki. Ef ókunnugur fengi ekkert nema viðtöl eftir leiki úrvalsdeildarinnar og væri ætlað það hlutverk að segja til um hvaða stjóri væri með besta liðið og efstir í töflunni eða í það minnsta í toppbaráttunni, þá væru góðar líkur á að það svarið yrði, Neil Warnock. Viðkomandi yrði að vísu ögn sleginn yfir því hvílíkum órétti bæði stjórinn og liðið væri beitt, trekk í trekk, en þar sem þeir væru alltaf "doing enough to win the game" og Warnock alltaf að tyggja hinn frasann sinn líka; "I thought we were brilliant" þá væri erfitt að áætla annað en þarna væri mikill en blóðheitur "winner" á ferðinni. Staðreyndin er hins vegar sú að ef þú heyrir Warnock nota báða þessa frasa sína í viðtali eftir leik þá eru 90% lýkur á að leikurinn hafi tapast. Það var eftirminnilegt í vetur þegar QPR hafði náð jafntefli á heimavelli að hlusta á þennan meistara tjá sig. Maður sat eftir eins og hálfviti og hljóp til og kíkti á stöðuna í deildinni, svona til athuga það til öryggis hvort að það væri eitthvert misminni með það QPR væri í neðri hluta deildarinnari! QPR boss Warnock: I thought we were brilliant - Var kunnugleg fyrirsögnin
"I would be more concerned if we weren't playing brilliantly," said Warnock, whose side have now drawn four of their seven home matches". - "Playing brilliantly" en vinna varla leik! Kunnuglegt líka.
"We have come so far. We're gutted to draw with West Bromwich Albion in a game we've dominated. If you look back 12 months ago, I think we've moved on more than anybody else in the country. - Og maður kemst ekki hjá því að míga næstum á sig af hlátri.
"I would like us to move on again and I think it is great to watch. I love watching us play. - Magnað ! I am frustrated tonight with the result, but there are not many people I would change at the minute.
"I am delighted with how we are and just frustrated we don't have six or seven points more". Og rúsínan í pylsuendanum:
"I thought we should have beaten Man City and Norwich so that is even more frustrating."
- Sem báðir töpuðust, nota bene, ekki einu sinni að þeir næðu jafntefli!
Þetta sat í mér vegna þess að þarna var EKKI um tapleik að ræða og ég hugsaði að Warnock væri bara nokkuð hógvær að koma með tapleiks viðtal eftir að hafa þó náð jafntefli heima. Þess má geta að QPR domineruð aldrei þennan leik. Voru reyndar meira með boltann en WBA áttu 10 skot sem rötuðu á rammann gegn 4 og mun betri og fleiri færi.
Eftir situr stjóri með lið í fallbaráttu. Hann er rekinn og í viðtali eftir brottreksturinn segir hann. "Ég er ekki bitur" síðan kom nokkurn veginn viðtal sem hægt væri að nota sem dæmi um það hvernig skilgreina skal hugtakið "bitur". Líddsarar. Njótið vel. Ég myndi búa mig undir að Leeds verði besta liðið í Championship, alla vega ef þið hlustið á stjórann. Ég er hins vegar ekki jafn viss um að úrslitin verði öll í samræmi við það. Að lokum vil ég svo benda mönnum á þess frábæru samantekt þar sem segir m.a. "His borderline psychosis is too large – too feral – to be contained within such an environment. It belongs on the big stage. Hell the man is so Hollywood it belongs on the big screen." - og hér kemur svo krækjan: "Here are our five favourite moments of managerial lunacy from a man who probably argues with himself in his sleep."
»
19.02.2012 18:54:36 / canary
Þá eru 2 umferðir af 10 að verða búnar af nýja leiknum okkar og hlutskipti manna er æði misskipt. Ég hef uppfært stöðuna á síðunni hér til hliðar. Þetta lofar góðu og greinilegt að möguleikinn á sviptingum er mjög góður og verður spennandi að fylgjast með taktískum átökum þegar nálgast fer lokin. Vil koma þeirri ábendingu til keppenda að þegar þeir senda inn spá sína þá er það verulega þægilegt fyrir mig ef þeir láta stuðulinn fylgja með. Ég vil einnig brýna fyrir þátttakendum að vera vakandi yfir mistökum vefstjóra í yfirferð og upplýsingum og allar ábendingar eru vel þegnar. Ég vil svo hvetja menn til að gleyma sér ekki alveg við leikinn eingöngu. Ég hafði fyrir því að setja hér inn pistil fyrr á helginni þar sem ég var að vonast eftir innleggi ykkar í umræðuna. Endilega takið nú við ykkur.
»
18.02.2012 13:59:42 / canary
Þar sem ég sé fyrir mér að það geti orðið líflegra hér næstu dagana vegna leiksins okkar þá ætla ég að reyna eftir föngum að vera duglegur við að henda hér inn styttri pistlum, eða "pistlingum", svona til að forðast kraðak í kommetunum. Hér kemur því það sem helst hefur vakið athygli mína í boltheimum frá því í gær.
„Paul Lambert reveals plans to field under-strength Norwich side against Leicester in the FA Cup as Premier League is 'priority'“ segir í grein hér og Lambi við sama heygarðshornið. Verður fróðlegt að sjá hversu langt hann gengur eða hvort þetta er sami sálfræðihernaðurinn og fyrr í vetur. Ný stjóri Leeds er Neil Warnock. Hæfir kjaftur skel! Ég hefði verið til í að setja peninga á þetta fyrir einhverjum dögum síðan og hefði eflaust gert það ef ég væri kunnugri erlendum veðbönkum. Hvort þetta reynist verða „match made in heaven“ eða „match made in hell“ á eftir að koma í ljós.
Ég ætla að spá því að þetta byrji vel en endi illa áður en langt um líður. Sé ekki fyrir mér að Warnock – Bates kombó virki í langan tíma. Ég efa það ekki að sumir fastagestir hér hafa á þessu skoðun og væri gaman að heyra hvað menn sjá í sínum kristalkúlum um þennan ráðahag. Ég leyfði mér að taka stöðuna á „mínum mönnum“ í Championship og eftir að hafa lesið eitthvert Derby-blogg þar sem stuðningsmaður virtist vera að verða úrkula vonar um að eitthvað spennandi sé að gerast hjá Hrútunum, þá finnst mér tímabært að spyrja hvort ekki sé kominn tími á að Æðsti – Hrútur, Seniorinn okkar, lyfti aftur gulu spjaldi á Klöffarann? Þetta svín virkaði hér fyrir stuttu og DC stökk á rönn og vonir vöknuðu í brjóstum manna á ný að möguleikar á baráttu um úrvalsdeildarsæti væru ekki algjörlega úr sögunni. En áhrifa gula spjaldsins frá Íslandi dvínuðu hratt og ljóst að halda þarf Klöffaranum við efnið. Nú hefur ekki unnist sigur í 5 leikjum í röð og ókyrrð í lofti!
Nú þykist ég vita að Seniorinn sé hér eins og grár köttur og eigi eftir að sjá þetta innlegg. Hann kannski heiðrar okkur með innsæi sínu og glöggu auga á hans eigin menn. Magnaðast af öllu væri auðvitað að fá bara gestapistil um Hrútana. Alla vega aðkallandi að fá svar við spurningunni hvort ekki sé kominn tími á annað gult spjald, nú eða hreinlega rautt?
Að lokum vil ég fagna því að við höfum náð að koma Sleiknum á koppinn. Góð þátttaka, 10 manns, reyndar tveimur færra en ég taldi líklegt í gær. En gott engu að síður. Bendi áhugasömum á að hægt er að fylgjast með stöðu mála í þessum leik okkar á undirsíðu hér til hliðar "S-Leikurinn"
»
17.02.2012 10:48:25 / canary
Það er af sem áður var og með nokkuri eftirvæntingu að ég horfi til helgarinnar. Bikarhelgi og staðan er ólík því sem hún hefur verið lengi og maður upplifir sig ögn klaufalegan við að setja sig í stellingar fyrir leik helgarinnar. Undanfarin ár hefur baráttan iðulega verið svo krítísk á deildar vígstöðvunum að spenningur fyrir bikarleik hefur vart verið mælanlegur. Nú bregður svo við að úrvalsdeildarsæti á næstu leiktíð virðist því sem næst tryggt og möguleiki á að komast í 8 liða úrslit í FA Cup. Þetta er því svolítið eins og að ganga í endurnýjun lífdaga fyrir mig, sem og auðvitað fyrir NCFC, því ekki hafa þær margar verið ánægjustundirnar í bikarkeppnum nú um margra ára skeið. Andstæðingarnir eru Leicester City. Í gegnum söguna hafa NC betur í innbyrðis viðureignum félaganna í deildinni en því er öfugt farið í bikarnum. Í FA Cup hafa Leicester betur 4-1 svo ef nota á fyrri viðureignir sem leiðarljós þá er einsýnt að það stefnir í óvæntan útisigur á Carrow á morgun. Ég ætla nú samt að gera ráð fyrir því að mínir mæti ákveðnir til leiks og gef lítið fyrir yfirlýsingar Lamba um að áherslan sé á næsta deildarleik gegn Man.Utd. Hann hefur notað þessa taktík fyrir seinustu bikarleiki, að tala þá niður, en þegar á hólminn hefur verið komið, þá hefur ekki farið framhjá neinum að menn hafa verið mættir til að ná úrslitum. Og liðsuppstilling sterkari en Lambi hafði gefið tilefni til að ætla að yrði.
Í þessu ljósi ætla ég að spá því að mínir menn séu á leið í 8 liða úrslit en án þess að um nokkra flugeldasýningu verði að ræða. Eins marks sigur þar sem Leicester láta okkur hafa fyrir hlutunum, 2-1. Þá er það Sleikurinn. Nú liggur fyrir að þátttaka í honum verður nægilega góð til að við getum verið þess fullvissir að fyrsta umferð er á morgun. 5 hafa núþegar formlega gegnið frá skráningu sinni og tveir aðrir sem hafa meldað sig hér eiga eftir að ganga frá formsatriðum. Að auki eru aðilar sem vefstjóri hefur haft spurnir af líklegir til að bætast í hópinn.
Ég sendi út tilkynningu á nokkra vel valda menn sem eru hér reglulega og þ.m.t. á Ó(ha)mar nokkurn Þorgeirsson. Fékk ansi skondin viðbrögð sem ég ætla að deila hér með ykkur. Blessaður meistari,
þakka gríðarlega gott boð en ég hef aldrei unnið á lengjunni og er glæpsamlega lélegur spámaður og hef því ekki úthald í svona dæmi.
Sýnist Andri Valur Ívarsson a.k.a. Mr. Betson vera líklegur til sigurs en spái því að Aðalsteinn Jesú Halldórsson muni gera manna mest í brækurnar. Frelsarinn verður í ruglinu frá fyrsta leik og reynir svo á örvæntingarfullan hátt að redda sér með því að setja x á NBA leik á lokadeginum en mistekst hrapallega Hugleysið sem sagt algjört á þessum bænum enda veit maðurinn að þetta verður stutt gaman hjá Hömrunum í þetta skiptið.
Örstutt að lokum um Sleikinn og reglur hans. Þar sem við erum að prufukeyra hér nýtt „format“ og einhver örlítil óvissa er með fjölda S-leikja á Lengjunni og það gæti komið upp dagur / dagar þar sem enginn S-leikur er í boði, þá legg ég til að við ákveðum að umferðirnar verði 10 á 10 dögum og vefstjóri hafi þá tækifæri til að tilkynna með góðum fyrirvara að 2 umferðir verði sama daginn (t.d. á laugardaginn eftir viku) ef þörf er á. Það er reyndar mjög ólíklegt að þessi staða komi upp.
»
15.02.2012 12:21:19 / canary
Ágætu boltspjellingar. Það er orðið ár og öld síðan við höfum tekið góðan giskleik. Nú er tímabært að setja sig í stellingar því hér er kominn nýr leikur og núþegar hafa nokkrir aðilar lýst yfir áhuga á því að vera með. Um hvað snýst svo málið: S-Leikurinn Leikurinn stendur frá og með 18. n.k. til og með 27. n.k. (þ.e.a.s. í 10 daga.) Þátttökugjald er 1000 krónur og fer í vinningspott sem gengur óskiptur til sigurvegarans að leik loknum. Hver og einn þátttakandi skal velja 1 S-merktan leik á Lengjunni á dag, þá daga sem leikurinn stendur og S-leikir eru í boði. Einnig má velja leikina fram í tímann til hægðarauka svo lengi sem það er klárt að þú átt fyrir því. Hver þátttakandi byrjar með 300 krónur í byrjunarpotti sínum og markmiðið er að gera sem mest úr þessum 300 krónum á 10 dögum. Leggja má undir frá 100 krónum og uppúr á hvern leik. Ef þú klárar fyrsta 300 króna byrjunarpottinn þinn án þess að vinna og stendur því á núlli, þá máttu byrja aftur með 300 krónur og það eina sem gerist er að gróði þinn reiknast nú m.t.t 300 króna í mínus stað 0.kr (eða á sléttu) Þú getur byrjað jafn oft og þú vilt á þessum 10 dögum. Einungis bætast 300 krónur við í mínus í hvert skipti. Tilkynning um veðmál dagsins hverju sinni, skal setja hér inn undir athugsemdir eða koma til vefstjóra nægilega snemma til að hann geti komið því inná spjallið fyrir hönd þátttakanda, áður en leikur byrjar. Tilkynna skal þátttöku sína með því að skrá sig hér fyrir neðan í athugasemdir við þetta innlegg. Auk þess skal senda tölvupóst á oj@simnet.is Þá fá menn sendan póst til baka varðandi hvert skal greiða þátttökugjaldið. Þátttökugjald skal hver þátttakandi greiða áður en hann tekur þátt í fyrsta skiptið, þ.e.fyrir sitt 1. veðmál. M.ö.o. nýjir þátttakendur geta bæst í hópinn hvenær sem er á meðan á leiknum stendur.
Ef leik er frestað eða hann blásin af, fellur hann alfarið niður og telur hvorki sem tap eða gróði. Hverjum og einum er það algjörlega í sjálfsvald sett hvort hann raunverulega tekur þátt á Lengjunni með því að kaupa miða. Lengju-formatið er einungis notað sem rammi utan um leikinn. En vonandi gera menn þetta í alvöru því það gerir leikinn mun skemmtilegri. Ég legg til að við förum ekki á stað með þetta nema að hópurinn telji að lágmarki 8 manns. Vefstjóri kemur svo til með að halda úti daglegum upplýsingum um stöðu mála. Með kveðju og endilega smalið nú saman í góðan hóp.
»
14.02.2012 12:16:01 / canary
Best að reyna að bæta ögn fyrir helgarpistilsklúðrið frá helginni sem leið. Ég verð ekki á hefðbundnum slóðum í byrjun og ætla að hafa hér nokkur orð um eitt það stærsta félag á Bretlandseyja sem staðið hefur frammi fyrir „greiðslustöðvun“ (administration). Svo segi ég kannski örfá orð um Liverpool. „For every five pounds Celtic spend, we will spend 10“ sagði glaðhlakkalegur og gleiður stjórnarformaður Glasgow Rangers árið 2000. Þarna rúllaði boltinn af stað og 4 árum síðar var skuldastaða þeirra orðin 72 millj. GBP í mínus. Í ofaná lag virðist sem algjör óstjórn hafi verið á öllum hlutum og fyrir rétti er krafa vegna skattaskuldar uppá 49 millj. punda. Í dag hefur fyrsta skrefið verið tekið fyrir félagið að fara fram á greiðslustöðvun. Þess má geta að á þessum góða áratug hefur þetta samt ekki skilað því að þeir hafi unnið titilinn oftar en erkifjendurnir í Celtic. Celtic hafa vinninginn! Og til samanburðar var Celtic rekið með góðum hagnaði á síðasta ári.
Svona útrásarvíkinga hugsunarháttur er auðvitað ekkert einsdæmi þarna. Það er á fleiri stöðum þar sem menn hafa ætlað að leggja boltheima að fótum sér. Árlega undan farin ár hafa mismörg félög í ensku deildinni verið í svipaðri stöðu og oftar en ekki vegna þess að skammsýnir kaupahéðnar hafa fengið leyfi til að leggja framtíð félaganna undir í illa hugsuðum fléttum sem oftar en ekki hafa byggst á að „instant árangur“ komi sjálfkrafa af innspýtingu fjármagns í reksturinn. Fjármagns sem af stærstum hluta fer í fjárfestingu á leikmönnum sem kalla síðan á frekari fjárútlát og hærri launagreiðslur. En verstu dæmin eru auðvitað þau þar sem menn hafa haft hugmyndir um að sigra heiminn og byrjað að eyða peningum sem eru ekki til og þar er kannski albesta dæmið hinn fornfrægi klúbbur Leeds Utd. Ástæða þess að ég er að velta mér upp úr þessu er komið til af vangaveltum sem ég hef verið að fylgjast með varðandi fyrirhugað aðhald, og takmörkun á fjármagnsaustri til þess beinlínis að fjármagna taprekstur. Í hvað stöðu kemur þetta til með að setja þau félög sem stóla á opnar gullæðar megamilljónera, eins og t.d. Chelsea og Man.City? (vissulega hægt að nefna fleiri en nefni þessi 2 hér því þarna hefur tapreksturinn verið hvað mestur). Eru nýjir tímar farmundan þar sem félögin keppa á jafnari grunni eða finna menn bara einhverjar leiðir til að fóðra hlutina?
Hvað sem því líður þá er ég þakklátur fyrir það að eigendur NCFC hafa borið gæfu til að standast þær freistingar að eyða peningum sem eru ekki til og stefna þar með framtíð félagsins í voða. Skemmtilegt að rifja það upp í leiðinni að sumir fastagesta Boltaspjallsins hafa kallað þetta metnaðarleysi. Þá örstutt að Liverpool. Hvorki fyrr né síðar hef ég horft á knattspyrnufélag skíta jafn duglega í nytina sína og Liverpool að undan förnu. Ég læt fyrri yfirlýsingar og spurningar mínar um það efni duga en finnst þó að ég verði að nefna hér áberandi fylgifisk þessarar skitu. Það er hin áberandi skortur á að fastagestir úr hópi Púlara séu mættir hér til að tjá sig um málið. Þetta er auðvitað að mörgu leyti skiljanlegt því fáir eru þeir að verða eftir sem telja sig geta varið nokkurn skapaðan hlut og því upplifa menn sig í þröngri stöðu, margir hverjir, eftir að hafa farið hamförum í yfirlýsingum og hrópum í takt við það sem komið hefur frá K-K-Kenny.
Ég tek hatt minn ofan fyrir eigendum Liverpool FC að hafa gripið jafn snöfurmannlega inní til að þagga niður í og stoppa af þetta dæmalausa, skammarlega kjaftæði, sem því miður fékk að viðgangast þarna allt of lengi. Ég ætla samt að spá því að sögunni sé ekki lokið og tel í mig bæði hafa séð og heyrt nægilega mikið til þeirra sálufélaga, K-K-Kenny og Suarez til að áætla sem svo að heimskupörum þeirra sé ekki lokið.
»
11.02.2012 15:51:42 / canary
Það fór öðruvísi en áætlað var með pistlaskrif fyrir leik dagsins. Hér er því bara þetta málamynda innlegg svona til að bjóða uppá athugasemdir við tíðindi dagsins.
»
03.02.2012 14:17:19 / canary
Í tíð Lamba hafa NC, án undantekninga, bitið í skjaldarrenndur eftir slöku leikina og frammistaðan verið mun betri í næsta leik. Ég er ekki endilega að tala um tapleiki eingöngu, heldur þessa leiki þar sem liðið hefur bara hreint ekki verið að spila vel hver svo sem úrslitin hafa orðið. Seinasti leikur var slakur. Það mátti sjá hrópað á spjallborðum að þarna hefðu NC átt sinn lélegasta leik á tímabilinu. Ég reyndar algjörlega ósammála því og gæti í snarheitum talið upp 4 leiki þar sem and- og getuleysi var meira en í þessum leik. Hvað sem því líður þá er nýtt verkefni á næsta leyti og það er heimaleikur gegn Bolton. Ef farið er yfir tímabilið hjá Bolton hingað til þá er ljóst að þetta er ekki besti tíminn til að mæta þeim, alla vega ef tekið er tillit til úrslita undan farið. 1 tap í seinustu 8 leikjum (deild og bikar) og mjög svo frambærileg frammistaða gegn sterkum andstæðingum, og þar skemmst að minnast öruggs sigurs á Púlurum fyrir tæpum 2 vikum.
NC hafa ekki náð sigri í 3 seinustu heimaleikjum en ég trúi því að mínir menn haldi sínu striki, breyti ekki útaf venjunni eftir slakan leik, og komi ákveðnir til leiks og skili 3 stigum í hús. Ég hef meira að segja trú á að þetta geti orðið þægilegur 2-3ja marka sigur. Ég set á þetta 3-1 en áskil mér rétt til að endurskoða málið ef mér sýnist svo, er nær dregur leik. Þetta er helgi „stórra leikja“. Ég skora á menn í mini-tippmót! Endilega sendið hér inn ykkar spá fyrir þessa 4 leiki, með markatölu. Verðlaun í boði!
Chelsea – Man.Utd Liverpool – Tottenham
Man.City – Fulham
Norwich – Bolton Stuttlega að síðumálum. Það hafa orðið nokkur tíðindi frá því seinast og það sem leit út fyrir að geta orðið einfaldur flutningur yfir á Vísisbloggið er að öllum líkindum úr sögunni. Annar möguleiki er í skoðun og hvað sem líður vandræðaganginum þá hef ég enga trú á öðru en að þetta hafist fyrir rest.
Að lokum langar mig til að láta hér fylgja með liðsskipan úrvalsdeildarfélaganna eins og hún lítur út eftir lokun gluggans og að teknu tilliti til þeir reglna sem nú eru í gildi og útskýrðar eru í upphafi greinarinnar.
Smellið hér!
»
01.02.2012 18:57:05 / canary
Þó svo að NC hafi einungis eitt tap í seinustu 10 leikjum og séu taplausir á árinu þá er ég hræddur um að komið sé að tapleik. Sunderland hafa verið á mikill siglingu eftir að lærifaðir Lamba tók þar við og einungis Man.Utd hafa unnið sér inn fleiri stig á þeim tíma en Sunderland. Það er sem sagt mikil uppsveifla í gangi og ég á ekki von á öðru en að enn séu þeir Sunderland-menn að fleyta sér á þeim öldutoppi sem skapaðist við komu O´Neill til félagsins. Vonir mínar eru því hógværar fyrir kvöldið. Ég ætla bara að vona að mínir menn láti finna fyrir sér og geri andstæðingunum þetta eins erfitt og frekast er kostur. Sigurinn dettur Sunderland megin, 3-1. Ekkert er samt útilokað eins og maður er nú farinn að átta sig á. Ef ég hefði val þá flaggaði ég öllum merkjum þó svo að þetta sé í mínum huga svona, 60-30-10 leikur. Rétt örstutt að kaupum gærdagsins. Eins og áður sagði, dæmigerð kaup fyrir Lamba. Ryan Bennett, tæplega 22 ára varnarmaður. Mikið efni þarna á ferðinni ef marka má umsögn Lamba um leikmanninn og hefur nú Lambi oftar en ekki hitt naglann á höfuðið í þessum efnum.. Hefur spilað fyrir u-21landslið Englands og hefur þrátt fyrir ungan aldur tæpa 200 leiki á bakinu. NC fær þó ekki að njóta krafta hans fyrr en að mánuði liðnum því samkomulag var um að Peterbro hefði hann út mánuðinn meðan Ferguson leitar að manni í staðinn. Kaupverð er sagt vera u.þ.b. 3 millj. GBP og það var ekki leiðinlegt að sjá hvernig þetta atvikaðist og NC skyldi ná að hrifsa hann undan nefinu á þeim Swansea-mönnum en hann var á leiðinn þangað þegar hann fær spurnir af tilboði NC og snýr við. OTBC!
»
31.01.2012 12:38:17 / canary
Lokadagur gluggans runninn upp. Í gær voru innan við 30 millj. GBP búnar að skipta um hendur sem er alveg sáralítið miðað við að í fyrra voru það 225 millj. sem rúlluðu milli félaga í heildina. Það var met og þó svo að menn hafi kannski reiknað með að viðskipti yrðu með rólegra móti í þetta skiptið, þá sýnist mér á umræðunni að fæstir hafi reiknað með að sólarhring fyrir lokun væri horft á einungis tæpan 8. hluta summunnar í fyrra. Það er fjarri lagi að ég ætli að fara að taka undir allt það sem segir hér í þessari annars ágætu grein. En eflaust hafa tilraunir UEFA til að dempa eyðslubrjálaðið og setja hömlur gegn taprekstri sem síðan er þurrkaður upp af megamilljónerum að byrja að skila sér. Annars sýnist mér að þetta sé sambland af fleiri þáttum og ekki síst sú staðreynd að heilt yfir eru fjármálumhverfi álfunnar í kröggum og það sýnir sig í boltanum rétt eins og annars staðar.
En, glugginn er ennþá opinn. Og ég hef trú á því að áður en dagur er að kveldi kominn eigi talan eftir að rísa all verulega. Hér höfum við boltspjellingar vettvang til að velta okkur upp úr tíðindum dagsins. Væri gaman að heyra menn bregðast við þeim tíðindum sem óhjákvæmilega eiga eftir að birtast okkur í dag. Lambi sagði á blaðamannafundi að hann ætti óklárað verkefni í dag. Það hefði komið upp sú staða að skoða þyrfti 1-2 atriði. Hann tók þó fram að hann hefði enga hugmynd um það enn hvort eitthvað yrði úr hlutunum en þetta yrði skoðað. Hann ítrekaði svo að hann upplifði sig í þægilegri stöðu og væri sáttur við sinn hóp að svo komnu máli. Hann gaf ekkert upp um hvort um væri að ræða einstefnu inn, eða út, eða maður / menn í manns stað. Ég ætla því að vona að þetta „eitthvað“ sem er í gangi hafi ekkert með að gera að migið sé utan í okkar bestu menn nema þá að Lambi sé því viðbúinn og klár með að fylla skarðið hið snarasta.
»
28.01.2012 11:11:48 / canary
Þá er runninn upp bikarhelgi og mínir halda gallvaskir í annað sinn á 2 vikum til Black Country og mæta WBA. 2-1 sigur, sællar minningar, um daginn og til að hafa um það sem fæst orð, þá tel ég ekkert því til fyrirstöðu að vinna þarna aftur. Stjórar beggja liða segjast líklegir til að gíra sig með öðrum hætti en venjulega, í það minnsta í mannavali, og gæti það því farið allnokkuð eftir hvernig hraðsoðin blanda dagsins er að reynast á ögurstundu. Eða, auðvitað að Lambi og jafnvel Hodgson líka séu í yfirlýsingum sínum að reyna að afvegaleiða hvor annan en Lambi kom mönnum í opna skjöldu í seinustu umferð með því að tala hlutina niður en stilla síðan upp, því sem næst sterkasta liði.
Ég er satt best að segja kominn í svolítinn bikarfíling og farinn að binda vonir við að NC verði í hattinum fyrir 5. umferðina. Það er hreinlega ár og öld síðan að maður hefur hugsað; Já, bikarrönn gæti nú bara verið kærkomin reynsla en hvernig er annað hægt en að smitast af mögnuðum stjóranum. En best að missa sig ekkert yfir þessu. Spáin er, 0-2 og við sem sagt höldum hreinu aftur!
Þá er það glugginn. Lambi var hógvær fyrir opnun gluggans en var með 4 aðila sem hann óskaði eftir að stjórnin spyrðist fyrir um. Hann sagðist ekki vilja borga „silly money“ fyrir einn eða neinn og klárlega yrði ekki farið að brjóta upp launastrúktúrinn á þessum tímapunkti fyrir nokkurn mann.
Nú þegar glugginn er að loka lítur einna helst út að uppskeran sé 1 maður inn og 2 (3) út auk 3ja út á lánssamninga. Inn kemur Johnny Howson fyrir einhverja upphæð nálægt 2 millj. GBP
Út fara Oli Johnson og Stephen Hughes á „free transfer“. Nú, svo er vert að nefna að þriðji maður út telst vera De Laet en hann var lánsmaður frá Man.Utd. Lambi segir mest um vert að halda í sína bestu menn og segist hann sáttur, enda með góðan hóp. Hér má sjá stutta grein þar sem hann rennir yfir stöðuna .
Eins og boltspjellingar hafa eflaust veitt athygli hefur könnun verið í gangi hér vinstra megin. Eins og stundum áður hefur þetta sýnt sig vera tilgangslaust, alla vega til að fá einhverja raunhæfa niðurstöðu, því ekkert virðist því til fyrirstöðu að menn salli inn atkvæðum frá sömu ip-tölunni ef menn hafa einbeittan „brotavilja“ . Ég hef það samkvæmt áreiðanlegum heimildum að þannig sé það í þetta skiptið. Eitt er þó augljóst og það er að einhverjir 2 aðilar en þó að mestu einn, hafa verið manna duglegastir við að smella á efsta valkost. Ég held að ekki þurfi að velkjast í vafa um að þarna eru á ferðinni aðili /aðilar sem hlítur að sárna að sjá NC í góðri stöðu og vona að Lambi hverfi á braut sem fyrst. Þó svo ég agnúist út í það að menn vísvitandi geri könnunina marklausa þá vil ég að það komi hér fram að ég er alls ekki að segja að þetta sé útilokað og einhver sú staða komi upp að allt í einu sé Lambi á leiðinni út. Money talks! Sjálfur er ég að reyna að forðast það að hafa of miklar væntingar til þess hversu lengi við njótum krafta hans og smellti því við 1-2 tímabil í viðbót, einu sinni. Könnunin kemur til með að standa hér út mánuðin svo enn geta boltspjellingar bætt við atkvæðum.
»
26.01.2012 13:10:10 / canary
Ágætu boltspjellingar. Hér kemur kærkominn pistill í boði Aðalsteins J. Halldórssonar. Njótið vel! Vefstjóri
--
Ég vil byrja á ef til vill nokkuð óvæntum stað. Derby og stjórinn þeirra Klöff! Eins og hefur komið allnokkuð oft fram hér á síðunni þá hef ég vægast sagt verulega efasemdir um að Klöff sé rétti maðurinn í starfið hjá Hrútunum. Hann er náttúrulega sonur föðurs síns og fékk starfið þess vegna. Þeir eru þó líklega voðalega ólíkir stjórar ef marka má árangur þess yngri hingað til. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að eitthvað hefur verið að gerast undanfarið hjá þeim hvítklæddu. 16 stig af síðustu 21 mögulegu bendir til þess að allt önnur holling sé á liðinu (þar af sigur gegn Big Sam og West Ham). Auk þess vannst sigur á Örnunum í bikarnum mitt á milli þessara sigra. Vitaskuld hefur liðið rokið upp töfluna um leið og þetta hefur gerst og playoff ekki langt undan núna - allt getur gerst. Hvað veldur þessari umbreytingu? Ég hef grunsemdir um að það sé ákveðið gult spjald sem sýnt var Klöff fyrir leikinn gegn Bristol City þann 10. desember síðastliðinn. En hvað veit maður?
Enn heldur Öskubuskuævintýrið á Carrow Road áfram. Það getur enginn orðið neitað því að árangur Norwich undanfarið 4-5 misseri er kraftaverki líkastur. Eins og staðan er í dag þá er jafnvel hægt að gæla við Textavarpskeppnissæti næsta tímabil þó svo ég eigi nú síður von á því að það gerist. En Norwich falla ekki úr þessu, nei, það er ljóst að hér er á ferðinni eitt sterkasta liðið sem hefur komið upp í Premíuna í langan tíma. Ég tel að leikmennirnir séu minni þáttur í þessum árangri. Þeir eru margir ágætir en ég held að stjórinn sé potturinn og pannan í þessum stórfenglega árangri. Vonandi nær klúbburinn að halda honum nógu lengi til þess að hanga upp í efstu deild í einhvern tíma. Þá verður auðveldara að fá góðan arftaka og góða leikmenn. Ég læt ekki hér við sitja. Ég lýsi því yfir hér með að efstur á óskalista mínum yfir arftaka Sir Alex Ferguson er enginn annar en Paul Lambert. Framúrskarandi árangur með Norwich og sú staðreynd að hann er ekki "mengaður" af öðrum "toppklúbbum" (hefur t.d. aldrei stýrt Chelsea) færir honum fyrsta sætið eins og staðan er núna.
En talandi um mína menn. Sjálfsagt verður verðlaunaskápurinn lítið þyngri í vor en áður. Vissulega er fínn möguleiki í þremur keppnum sem eftir eru en ég á síður von á því að þeir klári mikið af þessu. Kannski Textavarpskeppnina eða FA bikarinn en líklega verður það hommablái helmingur Manchester sem hreppir bikarinn sem öllu máli skiptir í vor. Staðan er einfaldlega sú að liðið er ekki nægilega strekt til að takast á við öll þau meiðsli sem hafa dunið á félaginu í vetur. Þó svo að við hefðum orðið heppnari með meiðsli efast ég um að það hefði dugað til. Það vantar einhvern neista í liðið til þess að gera það frábært. Sá neisti verður að vera aðkeyptur. Auk þess er Fletcher nánast hættur! En ég missi nú ekki svefn yfir þessu. Við sigrum þá bara á næsta ári.
Hvað segja menn um Demba Ba? Er þetta "sæn" 21. aldarinnar hingað til? Verður Arsenal á eftir honum í sumar? Eða jafnvel LIverpool (geta boðið taglið og 20 millur)? Ef ekki væri fyrir þessa Afríkukeppni hefði hann líklega orðið markahæstur með sama áframhaldi. Það með skítaliði Newcastle. En svo veit maður ekki. Ég man eftir framherja hjá Newcastle sem var búinn að skora helling fyrir liðið á þessum tíma í fyrra en er núna á eftir Dirk Kát í goggunarröðinni hjá sínu félagsliði um stöðu í framlínunni.
Liverpool er í undarlegri stöðu núna. Aðdáendur liðsins hafa ekki verið ánægðri í 20 ár. Samt er liðið að skila álíka slöppum árangri og þótti gjörsamlega óviðunandi undir stjórn Benna, Roy og Meistara Houllier. Afar furðulegt. En slöpp úrslit eru víst í góðu lagi núna vegna þess að King Kenny er við stjórnvölin. Auk þess skýtur liðið mjög oft í stöng sem bætir upp fyrir árangsleysið heyrist mér. Auk þess er þetta ekkert sem liðið er að fá á sig af mörkum þannig að staðan er í raun ljómandi góð!
Ég ætla að enda á boltaspjallinu sjálfu. Það er með sorg í hjarta sem ég ræði hér með endalok boltaspjallsins í þessari mynd sem við þekkjum. Ljóst er að við boltaspekingar hefðum helst kosið að halda í þessa síðu í óbreyttri mynd. Hvernig má annað vera? Þessi síða hefur verið sú besta á internetinu, með hléum þó, alveg frá stofnun. Þær ánægjustundir sem við höfum upplifað með síðunni eru óteljandi. En lífið heldur áfram bíst ég við. Mín tillaga í málinu er sú að hafa þetta sem minnst rask. Mér skilst að með lágmarksfyrirhöfn sé hægt að flytja síðuna yfir á blogg Vísis og tel ég að það sé framtíðarfarvegur spjallsins. Sérstaklega ef það er staðreynd að gömlu pistlarnir og athugasemdirnar muni fylgja með í "kaupunum". Þeir eru náttúrulega ómetanleg heimild.
Með kveðju,
ajh
»
21.01.2012 10:49:07 / canary
Það er stundum eins og maður þurfi að klípa sig þegar skautað er um boltheima og maður minnist þess að á sama tíma fyrir 2 árum voru það Brentford og Walsall sem voru á radarnum. Umbyltingin getur vart hafa átt sér stað á skemmri tíma. Þetta er búin að vera löng og mikil veisla, sannkölluð sigurganga og maður yfirfer til öryggis í þrígang tölfræðina áður en maður hendir henni hér inn; 3 sigrar í röð, 1 tap í seinustu 8! Magnaður stjóri og ótrúlegir leikmenn. Ég segi ótrúlegir en er þá ekki endilega að meina ótrúlega góðir heldur ótrúlegir sumir hverjir fyrir það að vera afskrifaðir trekk í trekk sem úrvalsdeildarleikmenn. En Lambi hefur, staðfastur í sannfæringu sinni, einfaldlega sagt „upgrade“ og eins og hugbúnaður tölvunnar fáum við Grant Holt version 3,03, sem mætir öllum nýjustu kröfum og skilar sínu í sterkustu deild heims. Og ef farið er yfir feril leikmannsins þá má segja að þarna sé kominn amatör útgáfa af annars fokdýrum hugbúnaði, sem farið er að bera saman við það dýrasta sem finna má á markaðnum og er jafnvel að virka miklu betur. Hér má t.d. sjá skemmtilega umfjöllun frá The Independent í tilefni leiks dagsins gegn Chelsea.
Þess má geta að Glasgow Rangers eru nýjustu aðilarnir sem hafa verið að gera hosur sínar grænar fyrir Hestinum en McNally hefur sagt þeim að hann sé ekki til sölu. Allt getur gerst í dag að mínum dómi. Enn er tölfræðin NC megin ef skoðaðar eru innbyrði sviðureignir þessara liða í deildinni í gegnum árin. Chelsea hafa saxað á þetta og einn vinning eiga NC í forskot. En auðvitað vinnst enginn leikur á gamalli tölfræði.
Lýkurnar eru vissulega Chelsea megin en á góðum degi er sigur alls ekki óraunhæf niðurstaða. Þetta er svona 20-20-40 eða 1x2 staða og ég er svolítið í sama gírnum og fyrir seinasta leik að ég verð bjartari og bjartari því nær sem dregur leiknum. Tap í gær en hallast helst á að niðurstaðan verði 2-2 jafntefli. --
Mig langar til að deila með ykkur örfáum atriðum sem ég hef hrasað um að undanförnu og langar að fleygja fram hér spurningu sem gæti sómað sér vel í hvaða barsvari sem er. Hvaða lið hefur fengið á sig flest mörk í úrvalsdeildinni frá upphafi hennar?
Ég fleygði þessu fram í góðra vinahópi um daginn og það var ekki fyrr en ég endurorðaði spurninguna; „Hverjir eru lélegasta „ever present“ liðið í deildinni?“, að svarið kom.
Þau félög sem hafa setið í úrvalsdeild frá stofnun hennar eru sjö talsins, ásamt mörkum sem þau hafa fengið á sig þá er þetta svona: Tottenham (1000)
Everton (963)
Aston Villa (897)
Liverpool (731)
Chelsea (720)
Arsenal (699)
Man Utd (647)
Það vekur athygli að ekki einu sinni þarna eru Tottenham topp 6 klúbbur nema auðvitað að öfugum forsendum.
Örstutt að NC, Lamba og „glugganum“. Enn sem komið er hefur ekkert það gerst sem gerir mann órólegan eða gefur tilefni til að halda að einhver skörð verði höggvin í raðir minna manna í þessum janúarglugga. Lambi er samur við sig og öll hans umfjöllun er þess eðlis, eins og venjulega, að halda mönnum í algjörri óvissu um hvað er í gangi og helst ekkert að gefa upp um á hvaða miðum hann rær. Eitt „sæn“ er í pípunum, Howson frá Leeds, og eins og ég hef áður sagt þá er ég sáttur við það. Það er hins vegar súrt að hann skuli vera meiddur og þar sem þetta hefur verið í pípunum í nokkra daga án þess að yfirlýsing um undirritun hafi verið formlega tilkynnt þá óneitanlega hefur maður áhyggjur af að ekki sé allt sem skyldi.
Eru hnémeiðsli hans verri en menn ætluðu? Eða eru aðrir aðilar komnir að borðinu?
Hef ég einhverjar væntingar til gluggans? Ég er salla rólegur yfir stöðunni og á mér einungis eina von; að við höldum okkar bestu mönnum. Treysti stjóranum fullkomlega til að vega það og meta hvar skóinn kreppir og hversu mikið ef eitthvað má leggja út af fjármunum til að mæta því. Get þó ekki forðast þá hugsun að öflugur reynslumikill varnarmaður væri vel þeginn til að styrkja hópinn.
»
Síður: 1 2 3 ... 29
|
Heimsóknir
Í dag: 25 Alls: 115680
Dagsetning
23. febrúar 2012
|