Þá er runninn upp bikarhelgi og mínir halda gallvaskir í annað sinn á 2 vikum til Black Country og mæta WBA. 2-1 sigur, sællar minningar, um daginn og til að hafa um það sem fæst orð, þá tel ég ekkert því til fyrirstöðu að vinna þarna aftur. Stjórar beggja liða segjast líklegir til að gíra sig með öðrum hætti en venjulega, í það minnsta í mannavali, og gæti það því farið allnokkuð eftir hvernig hraðsoðin blanda dagsins er að reynast á ögurstundu. Eða, auðvitað að Lambi og jafnvel Hodgson líka séu í yfirlýsingum sínum að reyna að afvegaleiða hvor annan en Lambi kom mönnum í opna skjöldu í seinustu umferð með því að tala hlutina niður en stilla síðan upp, því sem næst sterkasta liði.
Ég er satt best að segja kominn í svolítinn bikarfíling og farinn að binda vonir við að NC verði í hattinum fyrir 5. umferðina. Það er hreinlega ár og öld síðan að maður hefur hugsað; Já, bikarrönn gæti nú bara verið kærkomin reynsla en hvernig er annað hægt en að smitast af mögnuðum stjóranum. En best að missa sig ekkert yfir þessu. Spáin er, 0-2 og við sem sagt höldum hreinu aftur!
Þá er það glugginn. Lambi var hógvær fyrir opnun gluggans en var með 4 aðila sem hann óskaði eftir að stjórnin spyrðist fyrir um. Hann sagðist ekki vilja borga „silly money“ fyrir einn eða neinn og klárlega yrði ekki farið að brjóta upp launastrúktúrinn á þessum tímapunkti fyrir nokkurn mann.
Nú þegar glugginn er að loka lítur einna helst út að uppskeran sé 1 maður inn og 2 (3) út auk 3ja út á lánssamninga.
Inn kemur Johnny Howson fyrir einhverja upphæð nálægt 2 millj. GBP
Út fara Oli Johnson og Stephen Hughes á „free transfer“. Nú, svo er vert að nefna að þriðji maður út telst vera De Laet en hann var lánsmaður frá Man.Utd.
Lambi segir mest um vert að halda í sína bestu menn og segist hann sáttur, enda með góðan hóp. Hér má sjá stutta grein þar sem hann rennir yfir stöðuna .
Eins og boltspjellingar hafa eflaust veitt athygli hefur könnun verið í gangi hér vinstra megin. Eins og stundum áður hefur þetta sýnt sig vera tilgangslaust, alla vega til að fá einhverja raunhæfa niðurstöðu, því ekkert virðist því til fyrirstöðu að menn salli inn atkvæðum frá sömu ip-tölunni ef menn hafa einbeittan „brotavilja“
. Ég hef það samkvæmt áreiðanlegum heimildum að þannig sé það í þetta skiptið. Eitt er þó augljóst og það er að einhverjir 2 aðilar en þó að mestu einn, hafa verið manna duglegastir við að smella á efsta valkost. Ég held að ekki þurfi að velkjast í vafa um að þarna eru á ferðinni aðili /aðilar sem hlítur að sárna að sjá NC í góðri stöðu og vona að Lambi hverfi á braut sem fyrst. Þó svo ég agnúist út í það að menn vísvitandi geri könnunina marklausa þá vil ég að það komi hér fram að ég er alls ekki að segja að þetta sé útilokað og einhver sú staða komi upp að allt í einu sé Lambi á leiðinni út. Money talks!
Sjálfur er ég að reyna að forðast það að hafa of miklar væntingar til þess hversu lengi við njótum krafta hans og smellti því við 1-2 tímabil í viðbót, einu sinni. Könnunin kemur til með að standa hér út mánuðin svo enn geta boltspjellingar bætt við atkvæðum.